Siku djama
13.2.2008 05:14:37 / dracula

er þér illa við einhvern?

Vertu ennþá verri!


Heimilið

- Rændu klósettsetunni.

- Settu tannkrem á klósettsetuna.

- Smurðu örlitlu vaselíni á alla bestu og dýrustu geisladiskana (mjög lítið svo það sjáist ekki).

- Settu handsápu í örbylgjuofninn og stilltu á eina mínútu. Lyktin
festist
í öllum mat eftir það, sama hversu oft hann er þrifinn.

- Taktu kexköku í sundur og settu pipar eða jalepineo á milli og fylgstu með þegar einhver fær sér bita.

- Ef einhver sem er ekki á vinsældarlistanum sker sig bentu honum þá á að sítrónu safi sé það besta til að stöðva blæðingu. Forðaðu þér.

- Settu smá rönd af vaselíni á klósettrúlluna og stráðu örlitlum pipar á
röndina án þess að piparkornin sjáist. Fylgstu með næsta klósettgesti úr hæfilegri fjarlægð. Biddu til guðs að þú lendir aldrei í þessu.

- Steldu fjarstýringunni, stattu fyrir utan stofugluggann, skiptu um stöð á 3ja sekúndna fresti og hækkaðu í botn.

- Finndu stórar og ljótar nærbuxur af gamalli konu eða karli, merktu þær fórnarlambinu og skildu eftir á baðherberginu í partýi.

- Klíndu vaselíni á alla spegla sem þú finnur. Vorkenndu þeim sem reynir að ná því af.

- Hér þarf smá þolinmæði en er vel þess virði ef tekst vel. Hringdu á
alla pípara, pítsusendla, sendibíla, rafvirkja, Herbalife sölumenn, húsmálara, og aðra sem eru líklegir til að koma á staðinn og vilja pening fyrir.
Gefðu öllum upp sama tíma og stað. Af 50 mæta kannski 20-25. Finndu þér gott sæti og horfðu á allt verða brjálað þegar allir vilja fá borgað.



Bíllinn

- Helltu tíu pokum fullum af poppkorni í púströrið.

- Troddu stórri kartöflu inn í púströrið.

- Tjakkaðu bílinn upp á afturhjólunum (framhjólunum á framhjóladrifnum bílum...) en ekki svo hátt að það sjáist þegar fórnarlambið gengur að bílnum.

- Smurðu vaselini á helstu gripfleti bílsins t.d. stýri, gírstöng hurðarhandfang og þess háttar.

- Settu blek í rúðupissið. Stígðu aldrei uppí þennan bíl aftur.

- Gleymdu súkkulaði á miðstöðvaropinu. Alveg óvart.

- Límdu rúðuþurrkurnar fastar með tonnataki.

- Festu fisk á kalt púströrið með vír.

- Festu brauðsneið á vatnskassann. Nokkrum mínutum síðar kemur svartur reykur undan húddinu.

- Helltu barnapúðri í miðstöðina. Stilltu á mesta blástur, settu útvarpið í botn og fylgstu með álengdar þegar bíllinn er settur í gang.

- Troddu nokkrum sardínum niður í miðstöðina. Orsökin finnst ekki fyrr en allt mælaborðið hefur verið rifið af og lyktin löngu orðin hluti af bílnum.